top of page
Cozy rooms

VARANLEG FÖRÐUN

Hjá Mótun & fegurð býður Sandra upp á varanlega förðun (microblade tattoo) sem er skerping og mótun á nátturulegan hátt. Hvort sem ástæðan er til að spara tíma, ef þú stundar mikið líkamsrækt, ef þú sérð illa, eða ert að ganga í gegnum veikindi.
Hver og einn viðskiptavinur upplifir persónulega þjónustu og fær allar þær leiðbeiningar sem eiga við hverju sinni, með litaval og form sem hentar vel til að fá sem besta útkomu.

​

Sandra notar eingöngu hágæða vörur frá Swiss-Color sem eru án allra aukaefna eins og nikkel og iron oxið. Allir litir frá Swiss-Color eru ofnæmisfríir og þeir lita breytast ekki, en það er mælt með að skerpa litinn á 12-18 mánaða fresti. Liturinn lýsist mismikið með tímanum en sól, snyrtivörur, húðgerð og frumuendurnýjun eru þar ráðandi þættir þar sem litarefnið er sett mjög grunnt í efstu lög húðarinnar.

Meðferð

Í fyrsta tíma er fyllt út form með öllum upplýsingum um heilsu viðskiptavinar.
Áður en meðferð hefst þá er formið teiknað upp í samráði við viðskiptavininn hverju sinni.
Það þarf að koma í 2 skipti með 4-6 vikna millibili fyrir hverja meðferð.

Augabrúnir: Microblade, Nano hárstrokur.

Mótun & fegurð vinnur að því að fá samning við Sjúkratryggingar Íslands fyrir niðurgreiðslu á meðferðum fyrir fólk í eða eftir lyfjameðferð.

Microblade tattoo also for men

Hvað þarf að gera áður er komið er í meðferð.

Before you come to us
  • Við mælum með (ekki nauðsynlegt) að lita og plokka brúnirnar fyrir augabrúna tattoo nokkrum dögum fyrir.

 

  • Þvo hár vel sama dag eða daginn fyrir meðferð.

 

  • Mætir hrein/n og án farða í meðferðina.

Hvað þarf að varast fyrstu dagana eftir meðferð

  • Ekki fara í ræktina, gufu, heitan pott, sund eða sólbað fyrstu 10 dagana eftir meðferð.

​

  • Forðast eftir fremsta megni að koma við meðferðar svæðið.

​

  • Hreinlæti mjög mikilvægt, þvo hendur og spritta reglulega.

​

  • Nákvæmar leiðbeiningar varðandi meðhöndlun sem og eftir meðferðar vörur frá Swiss Color eru gefnar að lokinni fyrstu umferð.

After treatment

Gott að vita

  • Deyfi krem er notað við allar meðferðir, og í flestum tilfellum finnur viðkomandi mjög lítið fyrir meðferðinni.​

​

  • Það má ekki koma í meðferð í augabrúnir, ef frunsa er til staðar.​

​

  • Það má koma í varanlega förðun í lyfjameðferð en einungis í samráði við lækni.​

​

  • Þar sem tattoo er litun á húðinni, þarf alltaf að lita og plokka hárin, en mun sjaldnar en áður.​

​

  • Fyrsti tími í meðferð tekur lengri tíma, þar sem verið er að móta og teikna upp í samráði við óskir viðskiptavinarins, að hámarki tveir tímar​

​

  • Endurkoma tekur að jafnaði um klukkustund​

​

  • Hjá Mótun & fegurð eru einungis notaðir hágæða litir frá Swiss Color​

​

  • Allir litir frá Swiss Color eru viðurkenndir, vottaðir og án allra aukaefna​

​

  • Það eru engir málmar í litunum eins og nikkel og iron oxið. Litirnir litabreytast ekki og eru ekki ofnæmisvaldandi​

​

  • Við ráðleggjum litaval út frá undirtón húðarinnar hverju sinni, og óskir hvers og eins eru ávallt virtar.​

​

  • Meta verður hvert gamalt tattoo fyrir sig hverju sinni, í flestum tilfellum er hægt að laga eldri tattoo.​

​

  • Ef ekki er hægt að laga þá er hægt að fjarlægja eldri tattoo með laser á viðurkenndum stofum.​

​

  • Það þarf alltaf 2-3 skipti til að fullklára varanlega förðun.

​

  • Varanleg förðun er ekki endanleg, það þarf að halda litnum við á ca 12-18 mánaða fresti​

​

  • Í gróanda ferlinu þá lýsist liturinn um 30–40%. Þar sem liturinn er settur mjög grunnt í efsta lag húðarinnar, og þarf því alltaf að skerpa litinn í endurkomu.​

​

  • Flest allir geta nýtt sér meðferðir Mótun & fegurðar, örfáar undantekningar eru varðandi vissa sjúkdóma og barnshafandi konur/konur með barn á brjósti geta ekki komið í meðferðir.​

​

  • Ef heilsufars vandamál eru til staðar þá ráðleggjum við viðkomandi að ráðfæra sig við lækni eða sérfræðinga okkar áður/þegar tími er pantaður.​

​

  • Helsta frábending er ef viðkomandi hefur áður fengið ristil. Þá er í öllum tilfellum mikilvægt að ráðfæra sig við lækni þar sem að meðferðin getur vakið upp sjúkdóminn.​

​

  • Form er alltaf teiknað upp og mælt í samráði við viðskiptavin áður en meðferð hefst.​

​

  • Hjá Mótun & fegurð starfar einungis sérfræðingur, sem eru með góða menntun á sviði varanlegrar förðunar.​​

​

  • Hreinlæti er mikilvægur þáttur við allar meðferðir, allt nærumhverfi er sótthreinsað, allar nálar og fylgihlutir fyrir hverja meðferð fyrir sig eru einnota

bottom of page